Ársreikningur
Rekstur Golfklúbbsins Keilis gekk vel á síðasta rekstrarári, afkoman var betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Mikil aukning í tekjum milli ára vegna lengra rekstrartímabils veitingasölunnar og bættrar afkomu æfingasvæðisins eins og á síðasta ári.
Tekjur á árinu 2025 voru 569,3 mkr. samanborið við 474,8 mkr. árinu áður. Gjöld voru 525,0 mkr. samanborið við 445,9 mkr. á árinu 2025. Tekjur jukust þannig um 21% á móti kostnaði sem jókst um 18%. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var 44,3 mkr. á árinu 2025 samanborið við 28,9 mkr. árinu áður.